föstudagur, október 31

Matartími...

Móðirin hefur gefist upp á leitinni að hleðslutækinu þannig að hún fjárfesti í nýju... og hér kemur myndasería af drengnum að næra sig


















miðvikudagur, október 22

erum enn á lífi hérna

jæja langt síðan eitthvað hefur heyrst af okkur hérna.Hér er allt gott að frétta. Kristleifur er alltaf að verða duglegri og duglegri og er mjög athafnasamur ungur maður. Það skemmtilegasta þessa dagana er að láta lesa fyir sig og er hann duglegur að koma skríðandi með bækur til manns og láta mann kurteislega vita að hann vilji vinsamlegast fá smá lestrarstund. svo er mikið sport að fara að gefa öndunum, nema bara að hann týmir ekki að gefa öndunum brauðið vill bara borða það sjálfur en endurnar eru samt soldið spennandi.


fimmtudagur, september 18

Herra pappakassi

Kristleifur er orðin mikill grallari og eitt af hans uppátækjum er að setja þennan pappakassa á hausinn og skríða út um allt með hann það er pínu fyndið að fyljast með því... (en er hleðslutækið týnt)


fimmtudagur, september 11

Jæja ekki finnst hleðslutækið ennþá... en vonandi getum við fengið lánað eitthvað fyrir réttirnar sem eru um helgina...


föstudagur, september 5

týnt hleðslutæki

Hleðslutækið af myndavélinni okkar hefur gufað upp... þannig að ég hef ekki tekið myndir í mánuð eða svo.... en hér koma þrjár myndir í slæmum gæðum teknar á vefmyndavélina í tölvunni.. þarna er Kristleifur búin að klifra upp í búrskáp og skemmtir sér konuglega við að hræra í hveitinu og klifra í skúffonum... já það er alltaf skemmtilegast þetta sem ekki má




mánudagur, ágúst 4

þriðjudagur, júlí 29

Myndir....

það er mikið að gera hjá Kristleifi þessa dagana alveg frá því hann vaknar og þangað til hann fer að sofa.... alltaf eitthvað að bardúsa... stoppar ekki... setja kubba í kassa og róta þeim aftur upp úr... srkíða út um allt..... opna skápa.. loka þeim aftur... róta öllu út úr skápnum.... standa upp við hluti... príla upp á hluti.... vínka.... (hann er mjög stolltur af vinkinu sínu og notar það í tíma og ótíma).... og fleira.... enda er hann oftast þreyttur þegar hann fera að sofa á kvöldin og sofnar fallega.... og við foreldrarnir laumumst inn í herbergið til hans og horfum á hvað hann er fallegur og friðsæll þegar hann sefur....

Lesstund
fela sig

ekki alveg í fókus

mikið að spá og spekulera

Móðir og sonur speiglast í stofuborðinu

og sís


Mjög upptekin í traktoraleik í sveitinni hjá Ömmu Nennu og afa Manna

Að leika með stóru frændum sínum Armanni Bjarna (5 ára) og Trausta Leif (4 ára)


Á Rugguhestinum

Embla fallegi fiðrildahundurinn var líka í heimsókn hjá ömmu og afa í sveitinni... mjög skemmtilegur