miðvikudagur, maí 30

Aftur á beinu brautina

Kristleifur Heiðar er aftur kominn á beinu brautina. Hann er laus við allar nálar og kominn á fullt fæði aftur. laus úr kassanum og kominn aftur í vögguna sína. Nú þarf hann bara að þjálfast í því að drekka sjálfur. Miklar æfingabúðir eru í gangi. Drengurinn dafnar vel og er orðin rúmar níu merkur.


Líkur Pabba sínum ?

Með höndina fyrir andlitinu


Svona eru nú lappirnar litlar

Amma Sigga frá Akureyri kom í heimsókn og fékk að máta Kristleif

Litla fjölskyldan

Sætir feðgar

Feðgarnir horfast í augu í baði


Í baði er sko noatlegt að vera



kominn með undirhöku þegar hann geispar

Mæðginin

sunnudagur, maí 27

Það gengur allt í rétta átt hjá Kristleifi. Hann er hættur á sýklalyfjonum en er ennþá með næringu í æð. Hægt og rólega er svo fæðið trappað upp. Vonandi verður hann laus við allar nálar sem fyrst. Það er búið að vera gestkvæmt hja drengnum um helgina þar sem amma hans og afi frá Akureyri eru búin að vera í borginni.

miðvikudagur, maí 23

allt við það sama

Allt er við það sama upp á spítala. Kristleifur er ennþá fastandi með næringu í æð og á sýklalyfjum. Þetta virðist allt líta ágætlega út og vonandi mun hann byrja að fá brjóstamjólk í magan sem fyrst aftur. Foreldrarnir hlakka mikið til þess þegar hann losnar við allar þessar nálar. Móðirin með nálafóbíuna finnst nýjasta staðsetning lálanna heldur ógeðsleg en þær eru núna í hausnum á honum. (furðulegt að fá næringu í gegnum æð á hausnum)

Feðgarnir að leggja sig saman

Kríublundur

Spekingslegur

Nálarnar í hausnum



búin til hetta úr grisju til að halda nálunum á sínum stað

mánudagur, maí 21

Þetta lítur vel út

Kristleifur Heiðar er sannur víkingur og stendur sig vel í veikindunum... Þetta lítur allt ágætlega út.. sýkiningin virðist vera á mjög lágu stigi og hann þarf því væntanlega ekki að fasta eins lengi og haldið var í upphafi.. hann er þó ennþá fastandi og fær sýklalyf til að vera nú með allt öruggt... Hann er ótrúlega hress og er alls ekkert veiklulegur

Ásdís að hugga strákinn sinn


Litli veiki kúturinn kúrir í kassanum


Allar nálarnar í litlu höndinni hans. Hann fær næringu og sýklalif í æð


Allar dælurnar sem dæla næringunni og sýklalifjunum í hann

Hann þurfti að fá blóðgjöf

Snuðið hefur verið honum mikil huggun í föstunni.. það er erfitt að fá ekkert í magann


Með risa stórar umbúðir um nálarnar í höndinni (þetta gula)

laugardagur, maí 19

sjokk 2

Það var ekki hægt að ætlast til þess að þetta gengi allt áfallalaust fyrir sig. Nú er litli kúturinn kominn aftur yfir á gjörgæsludeild inn í hitakassa því hann fékk garnasýkingu. Þetta er einn af þessum sjúkdómum sem fyrirburar geta fengið en er nú víst ekki algengt. Hann verður fastandi næstu 10-15 daga en fær bara næringarvökva í æð. Fær líka helling af einhverjum sýklalyfjum.

Þá er bara að bíða og vona það besta og sjá hvernig sjúkdómurinn þróast en í besta falli verður hann farinn að fá aftur brjóstamjólk í sonduna eftir viku til tíu daga. Málin geta þróast þannig að það þurfi uppskurð en fyrstu röntgenmyndirnar líta ágætlega út og góðar líkur á að hann nái sér vel af þessu.

Núna upplifir Kristleifur í fyrsta skipti hungur og ekki gaman að fylgjast með honum sprikla og kalla á mat. En það ætti að lagast sem fyrst, þegar maginn hans venst því að fá ekki mjólk.

fimmtudagur, maí 17

Allt í sóma

Kristleifur Heiðar dafnar bara vel á vökudeildinni. Hann var viktaður í gær og var þá orðin 1980 grömm og verður svo viktaður aftur á morgun og verður þá vonandi komin yfir tvö kílóin. Hann er komin af hitadínunni og er nú bara í spítlagallanum sínum í vögguni voða sætur. Við erum aðeins farin að prófa okkur áfram með brjóstagjöfina og Kristleifur er farin að sína ýmsa takta en hann er ekki alveg orðin nógu fær í því að sæmhæfa það að anda sjúa og kingja allt í einu. Það er víst eðlilegt að það sé ekki komið (þar sem hann er í raun bara 33 vikna og 4 daga gamall). Eitthvað hefur stubburinn verið blóðlítill undanfarið og er kominn á járnkúr en það er víst líka algengt hjá fyrirburum.. þetta er semsagt allt í rétta átt og Kristlefur er ósköp vær og góður.. gefur forerldrum sínum öðru hvoru undur fögur bros

sunnudagur, maí 13

Kristleifur Heiðar dafnar vel og er orðin 1820 grömm. Við eigum margar góðar studnur samann litla fjölskyldan


Feðgar í faðmlögum

Með rollunni sem Gleðikórinn gaf honum.. bestu vinir

mæðginin

Að sjúa litla puttann sinn

föstudagur, maí 11

Fyrsta baðið

Kristleifur Heiðar fór í sitt fyrsta bað á miðvikudaginn. Hjúkrunarfræðingur sýndi okkur foreldrunum hvernig best væri að gera þetta allt saman. Kristleifur kunni afar vel við sig í baðinu og slakaði vel á og naut sín í botn. hér er smá myndasería af þessu öllu saman.


Búið að hátta og taka sonduna... tilbúinn í baðið

Feðgarnir ræða málin fyrir baðið

Þrífa bak við eyrun

Slakar vel á í baðinu

Kominn upp úr og Helgi þurrkar honum

þurrkun

Kominn í hreyna samfellu orðinn hreynn og sætur

Loksins kominn með húfuna sína og búinn að hreyðra um sig í vöggunni sinni.









þriðjudagur, maí 8

Myndmál

Ásdís hjá hitakassanum (gamla heimilið)

Helgi hjá vöggunni (nýja heimilið)
Svona er maður nú lítill
í draumalandinu góða


Helgi fékk kvef og þurfti þá að vera með tannlæknagrímu

Kúrir í vöggunni sinni með grænu húfuna

Feðgar (sjáiði hvað þeir eru líkir)

mánudagur, maí 7

Kominn í heita vöggu

Kristleifur Heiðar er fluttur úr hitakassanum sínum og yfir í heita vöggu... og við fluttum í leiðinni af gjörgæslunni yfir á vöggustofuna...Þar er mun betri aðstaða fyrir foreldra og notalegra andrúmsloft.. Við fengum meira að segja að spila fyrir hann tónlist... Krisjana Arngríms og Ellen Kristjáns sungu vögguljóð fyrir hann... Hann er orðin heil 1626 grömm og er þá komin yfir fæðingarþyngdina og vonandi er þá bara allt upp á við...

kveðja Ásdís

laugardagur, maí 5

Litla fjölskyldan

Ásdís með litla ungann sinn

Fyrsta fjölskyldumyndin

Svona sefur maður nú sætt

fimmtudagur, maí 3

Allt gengur vel á barnaspítalanum... Kristleifur virðist hafa það bara ágætt í kassanum sínum.. hann sefur ósköp vært flestum stundum en vaknar öðru hvoru og horfir furðulostin á okkur foreldrana... Hann komst upp í fulla matargjöf í gær og er þá laus við næringuna sem var gefin í æð og fær bara mömmumjólk.. en mömmumjólkin verður eitthvað orkubætt á næstu dögum vegna þess að svona lítil börn sem ættu að búa í bumbu þurfa að eiða mun meiri orku en jafnarldrar þeirra sem búa ennþá í bumbum þar sem mörg ný áreyti eru í umhverfinu...




kveðja Ásdís

miðvikudagur, maí 2

Velkomin

Þessi síða verður sérstaklega tileinkuð syni okkar Kristleifi Heiðari.. hér munum við setja myndir af litlu hetjunni okkar....

kveðja Ásdís