sunnudagur, júní 17

Gengur hægt og rólega

Drykkjuæfingarnar ganga hægt og bítandi. Kristleifur hefur ekki bætt brjóstadrykkjumetið í nokkra daga, en þegar hann bætir metið fær hann límmiða í hjúkrunnarskýsluna. Hann heldur áfam að stækka mikið og er orðin 3118 grömm eða 12 merkur. Hér koma svo nokkrar myndir.

Sondulaus og sætur að fara að fá nýja sondu
Verið að stinga sondunni í nefið
Ekkert sérlega skemmtilegt

Úff

En hann er fljótur að jafna sig

Hjá Guðnýju frænku

Skoðar frænku sína

Siggi frændi að passa Kristleif

Með silkihúfuna sem amma Nenna gaf honum

8 ummæli:

gudnybjarna sagði...

...alveg áttu Kristleifur sjarmör eftir að taka mann upp úr skónum...þú ert gullmoli..

Harpa Hrund sagði...

hann er æði :D

Ýrr sagði...

flottur strákur! Hann er alveg að ná fæðingarþyngd Egils :) Hlakka til að koma í heimsókn til ykkar þegar þið fáið heimfararleyfi :) jeij jeij.

Nafnlaus sagði...

Voðalega er hann duglegur!

Nafnlaus sagði...

Maður er bara kominn með smá bollukinnar, skrítin tilhugsun að hann er orðinn næstum tveggja mánaða, hvað þarf hann að vera lengi þarna enn?

Nafnlaus sagði...

Vá hvað maður sér mikinn mun á honum núna og fyrstu myndunum :) Frábært alveg, flottur strákur

Nafnlaus sagði...

það er alveg ótrúlegt hvað Kristleifur hefur stækkað mikið á þessum stutta tíma (meira segja kominn með bumbu!). Greinilega hörkuduglegur og ákveðinn einstaklingur hér á ferð:)

Gangi ykkur öllum vel og þá sérstaklega í drykkjubúðunum...

Kv, Katrín

Nafnlaus sagði...

Vá, orðinn 12 merkur, frábært :) Og hann er ekkert smá fallegur!

Ég er annars að hugsa um að taka svona drykkjubúðir bráðum. Með bjór, umm...

hafið það sem allra best esskurnar, xxx Sigga