sunnudagur, júlí 8
Fjölskyldulífið í Hæðargarðinum
Já lífið er að taka á sig einhverja mynd í Hæðargarðinum.. Það er yndislegt að vera búin að fá soninn heim. Drengurinn er ósköp góður. Hann stækkar og tekur framförum á hverjum degi. Við erum búin að skila mjaltarvélinni og Kristleifur er bara farinn að sjá um drykkjuna alveg sjálfur og það gengur bara vel. Það er búin að vera heilmikill gestagangur hjá okkur og það er bara gaman. Við erum líka aðeins búin að bregða okkur af bæ. Kíkja til Langömmu og Sigga frænda og Sigrúnar. Já og svo skelltum við fjölskyldan okkur á tónleika á Gljúfraseini (menningaruppeldið er sko löngu hafið)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Við Jóna ætlum að panta tíma hjá ykkur á þriðjudagskvöld, hvernig hljómar það?
skemmtilega myndir, gaman sjá Kristleif dafna svona vel :)
hann er yndi
þið eruð sumsé orðin heimsóknafær
Skrifa ummæli