fimmtudagur, júlí 26

þrír mánuðir

Jæja þá er Kristleifur orðin þriggja mánaða gamall... Hann fór í þriggja mánaða skoðun í gær og fékk sína fyrstu bólusteningar sprautu..Hann tók því eins og sannur karlmaður enda orðin vanur því að vera stunginn. Hann var að sjálfsögðu vigtaður og mældur í skoðuninni og reyndist vera orðin 4560 gr ( 18 merkur), 56 cm og höfuðmálið 40,4 cm. Hann er mjög duglegur að stækka.

Hluti af kórbörnunum... stillt upp í aldursröð. Elena elst, svo Heiða Björg, næst Emilía Ólöf, þá Egill og loks Kristleifur á hinum enandum yngstur... svo sést í tærnar á öllum mömmunum sem voru að taka myndir

feðgar að leggja sig saman..
Verið að ræða málin

Á skiptiborðinu

Feðgarnir enn á ný..

Að kúra í mömmu og pabba rúmi

3 ummæli:

Telma sagði...

Gaman að sjá kórbörnin svona í aldursröð. Vonandi verður Brynhildur með í næstu uppröðun. Mikið er sonur ykkar annars sææætur

Harpa Hrund sagði...

skemmtilegar myndir- vá hvað kórbörnin eru orðin mörg hehehe

gudnybjarna sagði...

oh!...ég get ekki beðið að sjá myndir úr skírninni...