föstudagur, júlí 20

Trausti Leifur frændi búin að vera í heimsókn

Síðustu daga hefur Trausti Leifur frændi (miðstrákurinn hennar Auðar systur Ásdísar nýlega 3gja ára) verið í heimsókn hjá litlu fjölskyldunni...það má segja að við það hafi litla fjölskyldan breyst í stórfjölskyldu... það er mikið fjör í kringum Trausta og voru farnar ófáar ferðir út á róló með Kristleif í barnavagninum og svo skemmti Trausti sér í tækjunum.. Svo komu Hússtjórnunnarskóla stelpurnar í saumaklubb og gáfu Kristleifi hókus pókus barnastól... en það hefur einmitt verið draumur foreldranna að eignast svoleiðis stól


Trausti Leifur með Kristleif Heiðar litla frænda

Trausti Leifur og Kristleifur

Trausti Leifur, Ármann Bjarni og Ingera Elísabet krakkarnir hennar Auðar hjá Kristleifi

Inger Elísabetu fannst litli frændi sinn mjög merkilegur
Svona er gott að vera þegar manni er illt í maganum


3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk æðislega fyrir okkur, þetta var engin smá veisla ! Helgi er greinilega frábær húsmóðir ! ;o)

Nafnlaus sagði...

Fín þessi frændsystkini.
Og heita svona líka almennilegum nöfnum, ekkert Tara Sól kjaftæði.

Nafnlaus sagði...

Ég vildi bara þakka kærlega fyrir mig og segja að það var alveg æðislega gaman að hittast svona. Hlakka líka til að fá síðan að fylgjast með stóra(litla) stráknum ykkar stækk ;)